Á ári hverju velur starfsfólk Fossa fjárfestingarbanka það málefni sem stutt er með söfnun Takk dagsins. Á Takk deginum renna allar þóknanatekjur bankans ásamt beinum framlögum frá viðskiptavinum til þessa málefnis.
Takk dagur Fossa fjárfestingarbanka fer fram í ellefta sinn í dag, 27. nóvember. Á hverju ári velur starfsfólk Fossa málefni til að styðja og í ár varð Ljósið, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þess, fyrir valinu.
Auk Fossa taka Kauphöllin (Nasdaq Iceland) og uppgjörsfyrirtækið T Plús þátt í Takk deginum með því að fella niður öll gjöld af viðskiptum Fossa innan dagsins og renna þau í staðinn til söfnunarinnar.
Núverandi húsnæði Ljóssins er orðið of lítið og stendur illa undir þjónustu við þann fjölda sem leitar til félagsins og er markmiðið með söfnuninni í ár því að leggja Ljósinu lið við að opna nýtt stuðningssetur í nýju húsnæði. Til marks um aukna aðsókn er að árið 2006, þegar sjálfseignarstofnunin Ljósið varð formlega til, sóttu um 200 einstaklingar þar endurhæfingu. Á síðasta ári sóttu 1.674 einstaklingar þjónustu Ljóssins.
„Líkt og áður var mikill einhugur meðal starfsfólks um valið og ánægjulegt að geta stutt við þessa mikilvægu starfsemi. Það er ávallt tilhlökkunarefni að staldra við í samstarfi við viðskiptavini og samstarfsaðila og þakka fyrir það sem vel er gert,“ segir Steingrímur Arnar Finnsson, forstjóri Fossa fjárfestingarbanka.
Þátttaka í Takk deginum hefur frá upphafi verið afskaplega góð og viðburðurinn vaxið ár frá ári. Á síðasta ári söfnuðust 26,5 milljónir króna sem runnu til Einstakra barna. Þá hafði Takk dagurinn alls skilað ríflega 140 milljónum króna til styrkþega frá því söfnunin fór í fyrsta sinn fram árið 2015.
Hægt að leggja Ljósinu lið með því að leggja inn á söfnunarreikning:
Bankareikningur:
526-26-660914
Kennitala:
660907-0250