10. nóvember 2026

Almennt hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf. er hafið

Almennt hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf. er hafið. Þann 5. nóvember 2026 birti Bláa Lónið lýsingu sem samanstendur af samantekt, útgefandalýsingu og verðbréfalýsingu. Tekið verður við áskriftum á vef Fossa fjárfestingarbanka hf. www.fossar.is/blaalonid frá kl. 10:00 þriðjudaginn 10. nóvember 2026 til kl. 16:00 föstudaginn 13. nóvember 2026.

Bláa Lónið, Landsbankinn og Fossar fjárfestingarbanki bjóða til opins kynningarfundar í tengslum við almennt hlutafjárútboð Bláa Lónsins. Boðið verður upp á beint vefstreymi af fundinum sem verður aðgengilegt á vefsíðu Landsbankans, www.landsbankinn.is/blaalonid, og á vefsíðu Bláa Lónsins, www.blaalonidhf.is/fjarfestar.

Bláa Lónið hf. er íslenskt hlutafélag sem sinnir rekstri, þróun og markaðssetningu á heilsu- og vellíðunarþjónustu. Félagið sérhæfir sig í rekstri áfangastaða á heimsmælikvarða sem byggja á hönnun, gæðum, einstökum eiginleikum íslenskrar náttúru og áratuga reynslu. Þeirra á meðal er Bláa Lónið, eitt þekktasta baðlón heimsins, the Retreat, Silica Hotel og Highland Base Kerlingarfjöll, baðlón Fontana við Laugarvatn, og Blue Lagoon Skin Science, alþjóðlegt húðvörumerki sem byggir á áratuga rannsóknum og einstökum innihaldsefnum úr jarðsjó Bláa Lónsins. Bláa Lónið hf. hefur einnig gert samning um kaup á öllu hlutafé í Arctic Adventures hf., sem er leiðandi upplifunar- og ævintýraferðaþjónustufyrirtæki. Allir fyrirvarar vegna kaupanna hafa verið uppfylltir og verður félagið því hluti af samstæðunni fyrir lok nóvember. Bláa Lónið hf. vinnur einnig að umfangsmikilli uppbyggingu í Þjórsárdal, þar sem Fjallaböðin, Mountain Retreat og Gestastofa munu rísa, auk þróunar nýs baðlóns og hótels á Hoffelli. Bláa Lónið á jafnframt hluti í völdum áfangastöðum víða um land: Jarðböðunum við Mývatn, Vök á Egilsstöðum og Sjóböðunum á Húsavík.

Helstu skilmálar útboðsins

  • Tekið verður við áskriftum á vef Fossa fjárfestingarbanka hf., www.fossar.is/blaalonid, frá kl. 10.00 þriðjudaginn 10. nóvember 2026 til kl. 16.00 föstudaginn 13. nóvember 2026.
  • Hver áskrift í almenna útboðinu skal vera frá 100.000 kr. til 20.000.000 kr. í áskriftarbók A og yfir 20.000.000 kr. í áskriftarbók B.
  • Fjárfestar geta breytt eða afturkallað áskrift sína á útboðstímabilinu.
  • Gert er ráð fyrir að niðurstöður útboðsins verði birtar eigi síðar en 16. nóvember 2026.
  • Gjalddagi og eindagi greiðsluseðla vegna útboðsins er 18. nóvember 2026.
  • Áætlað er að hlutabréf félagsins verði afhent kaupendum eigi síðar en 20. nóvember 2026.
  • Áætlað er að hlutabréf félagsins verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland þann 20. nóvember 2026.

Auglýsing. Vakin er athygli á því að fjárfesting í hlutabréfum felur í sér áhættu. Fjárfestar eru hvattir til að lesa birta lýsingu félagsins, sem staðfest hefur verið af Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands, áður en ákvörðun um fjárfestingu er tekin til að skilja til fulls mögulega áhættu og ávinning fjárfestingarinnar. Staðfestingu fjármálaeftirlitsins ber ekki að skilja sem stuðning við útgefandann eða þau verðbréf sem boðin eru eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði.