Einkabankaþjónusta Fossa
Sérfræðingar okkar annast fjárfestingar viðskiptavina með það að markmiði að hámarka ávöxtun og lágmarka áhættu í samræmi fjárfestingarstefnu viðskiptavinar. Auk þess sem viðskiptavinur fær aðgang að fjölbreyttri þjónustu Fossa og samstarfsaðila okkar.
Hentar einstaklingum, fjölskyldum og fyrirtækjum sem vilja:
- Skýra, einbeitta og stöðuga fjárfestingastefnu
- Tryggja gott jafnvægi milli ávöxtunar og áhættu
- Faglega umsjón með fjármunum sínum
- Nýta sinn dýrmæta tíma betur
Við hlúum að því sem skiptir máli
Við búum að áratugareynslu hjá starfsfólki Fossa og ÍV og störfum náið með fjárfestum til að ná langtímaárangri með sveigjanlegri og persónulegri þjónustu. Við forðumst bólumyndun og stýrum eignum af yfirvegun og með langtímahugsun að leiðarljósi.
Við opnum dyr að tækifærum
Einkabankaþjónustan veitir beinan aðgang að fjárfestingartækifærum innan samstæðunnar, s.s. í gegnum fyrirtækjaráðgjöf, lánasvið, markaðsviðskipti og ÍV. Auk þess fylgir einstakt aðgengi að erlendum mörkuðum í gegnum trausta samstarfsaðila.
Íslensk verðbréf eru nánir samstarfsaðilar okkar
Eignastýring er í höndum Íslenskra verðbréfa hf., systurfélagi Fossa, sem hefur yfir að ráða teymi sérfræðinga með mikla reynslu af virkri stýringu eigna.
Fjölbreytt þjónusta
Sérkjör á lögfræðiráðgjöf hjá BBA//Fjeldco, m.a. í skatta- og erfðamálum og á tryggingum, sjóða- og verðbréfaviðskiptum hjá samstæðu Skaga.
Við bjóðum upp á: