Magnús Örn Guðmundsson

Forstöðumaður
Einkabanki

Magnús Örn er forstöðumaður einkabankaþjónustu Fossa. Hann hefur yfir 20 ára reynslu á fjármálamarkaði.

Á árunum 2008 til 2024 starfaði Magnús hjá Sjóðastýringarfyrirtækinu Stefni hf. Þar var hann sjóðstjóri og forstöðumaður blandaðra fjárfestingarsjóða og stýrði meðal annars stofnun, uppbyggingu, eignastýringu og sölu á sjóðum Stefnis fyrir einkabankaþjónustu. Frá árinu 2020 leiddi hann svið hlutabréfa og blandaðra sjóða Stefnis í tæplega fimm ár.

Áður starfaði Magnús meðal annars sem sérfræðingur á fjármálasviði Fidelity Institutional Asset Management í Boston og sem sérfræðingur í eignastýringu fagfjárfesta hjá Kaupþingi.

Magnús sat í bæjarstjórn Seltjarnarness frá 2015 til 2026 samhliða öðrum störfum, var forseti bæjarstjórnar 2018-2022 og formaður bæjarráðs 2018-2026. Hann hefur tekið að sér margvísleg trúnaðarstörf á vettvangi stjórnmála.

Magnús Örn er með MBA gráðu með áherslu á fjármál fyrirtækja frá Northeastern University í Boston auk þess að vera viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og með próf í verðbréfaviðskiptum.