Hlutafjárútboð Bláa Lónsins

Um útboðið

Hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf. er fyrirhugað dagana 10.–13. nóvember nk. í tengslum við umsókn um töku allra hluta félagsins til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Um er að ræða almennt útboð á samtals 150.000.000 hlutum í Bláa Lóninu. Fossar fjárfestingarbanki hf. og Landsbankinn hf. hafa umsjón með útboðinu.

Helstu skilmálar útboðsins

  • Tekið verður við áskriftum í gegnum útboðsvef frá kl. 10:00 þriðjudaginn 10. nóvember 2026 til kl. 16:00 föstudaginn 13. nóvember 2026.
  • Hver áskrift í almenna útboðinu skal vera frá 100.000 kr. til 20.000.000 kr. í áskriftarbók A og yfir 20.000.000 kr. í áskriftarbók B.
  • Fjárfestar geta breytt eða afturkallað áskrift sína á útboðstímabilinu.
  • Gert er ráð fyrir að niðurstöður útboðsins verði birtar eigi síðar en 16. nóvember 2026.
  • Gjalddagi og eindagi greiðsluseðla vegna útboðsins er 18. nóvember 2026.
  • Áætlað er að hlutabréf félagsins verði afhent kaupendum eigi síðar en 20. nóvember 2026.
  • Áætlað er að hlutabréf félagsins verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland þann 20. nóvember 2026.

Áskriftarbækur A og B

Áskriftarbók A

Stærð áskrifta
Frá 100.000 kr. til 20.000.000 kr.
Útboðsgengi
Fast verð 95 kr. á hlut.
Stærð útboðs
Til sölu verða 45.000.000 hlutir (30% af stærð útboðsins).
Úthlutun vegna umframeftirspurnar
Áskriftir í áskriftarbók A verða skertar hlutfallslega, þó þannig að leitast verður við að skerða ekki áskriftir undir 1.000.000 kr. og flötum niðurskurði beitt á hæstu áskriftir ef það dugar ekki til. Leitast verður við að skerða ekki áskriftir starfsmanna félagsins upp á fjárhæð 5.000.000 kr.

Áskriftarbók B

Stærð áskrifta
Yfir 20.000.000 kr.
Útboðsgengi
Tilboð skulu gerð á eða yfir lágmarksverði 95 kr. á hlut. Salan fer fram á föstu verði, sem ákvarðast jafnt og það lægsta af samþykktum tilboðum (hollenskt útboð).
Stærð útboðs
Til sölu verða 105.000.000 hlutir (70% af stærð útboðsins).
Úthlutun vegna umframeftirspurnar
Áskriftir sem eru á eða yfir útboðsgengi áskriftarbókar B verða samþykktar, þó þannig að ef umframeftirspurn verður í þessum hluta útboðsins verða áskriftir skertar. Við skerðingu í áskriftarbók B verða áskriftir metnar á grundvelli verðs. Þannig verður leitast við að skerða ekki áskriftir sem eru yfir útboðsgengi áskriftarbókar B en þær áskriftir sem eru á útboðsgengi áskriftarbókar B verða skertar hlutfallslega með tilliti til fjárhæðar áskrifta á því gengi. Öll samþykkt tilboð verða samþykkt á sama gengi: Útboðsgengi áskriftarbókar B.

Kynningarfundur

Bláa Lónið hf. býður til opins kynningarfundar í tengslum við almennt hlutafjárútboð félagsins. Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 10. nóvember klukkan 10:00 í Hörpu og er öllum opinn, auk þess sem honum verður streymt. Beint vefstreymi verður aðgengilegt á vefsíðu Bláa Lónsins, www.blaalonidhf.is/fjarfestar.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um Bláa Lónið hf., hlutabréf félagsins og skilmála útboðsins má finna í lýsingu félagsins, sem dagsett er 5. nóvember 2026, og fjárfestakynningu sem eru aðgengilegar hér að neðan:

Hvernig tek ég þátt?

Til að taka þátt í útboðinu ferðu inn á útboðsvef. Nauðsynlegt er að vera með vörslureikning til þess að taka þátt í útboðinu.

  • Einstaklingar geta stofnað vörslureikning hjá Fossum hér.
  • Lögaðilar geta stofnað vörslureikning með því að hafa samband við onboarding@fossar.is.

Kynntu þér vandlega lýsingu og fjárfestakynningu í tengslum við útboðið.

Vakin er athygli á því að fjárfesting í hlutabréfum felur í sér áhættu og má kynna sér nánar áhættuþætti vegna starfsemi og hlutabréfa Bláa Lónsins hf. í lýsingu félagsins sem staðfest hefur verið af Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands. Staðfestingu Fjármálaeftirlitsins ber ekki að skilja sem stuðning við útgefandann eða þau verðbréf sem boðin eru eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði.

Spurningar um útboðið?

Hafðu samband við Fossa fjárfestingarbanka hf. á netfangið bl@fossar.is eða í síma 522-4000.