21. nóvember 2026

Bláa Lónið hefur viðskipti í Kauphöllinni

Viðskipti með hlutabréf Bláa Lónsins hf. hófust í dag á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland undir auðkenninu BLUE. Fossar fjárfestingarbanki annaðist almennt hlutafjárútboð félagsins ásamt Landsbankanum og hefur unnið með Bláa Lóninu að skráningunni undanfarin fjögur ár.

Útboðið fór fram dagana 10.–13. nóvember og var vel tekið. Alls bárust tæplega fjögur þúsund áskriftir að fjárhæð um 15,3 milljarðar króna og voru seldir nýir hlutir fyrir tæplega 14,3 milljarða króna. Skráningin er sú fyrsta á Aðalmarkað í kjölfar almenns frumútboðs frá árinu 2023 og bætir einu þekktasta vörumerki landsins við íslenskan hlutabréfamarkað. Leiðin á markað hefur ekki verið bein. Tvisvar áður þurfti að fresta skráningarferlinu, fyrst vegna heimsfaraldurs COVID-19 og síðar vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga.

Þórður Ágúst Hlynsson, framkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar hjá Fossum:

„Skráning Bláa Lónsins markar nýjan kafla í sögu félagsins og er um leið afrakstur fjögurra ára vinnu teymisins okkar hjá Fossum. Tvisvar áður þurfti að slá ferlinu á frest, fyrst vegna COVID og síðar vegna jarðhræringa á Reykjanesi, og það gerir það enn ánægjulegra að sjá skráninguna loks verða að veruleika. Ég er stoltur af því sem teymið okkar hefur áorkað og þakklátur samstarfsfólki okkar hjá Landsbankanum fyrir afar gott samstarf. Sérstakar þakkir fær stjórnendateymi Bláa Lónsins fyrir að treysta okkur, fyrir að halda sínu striki í gegnum bæði áföllin og fyrir alla þá vinnu sem þurfti til að ná alla leið. Það hefur verið heiður að vinna með ykkur. Við óskum starfsfólki Bláa Lónsins og öllum hluthöfum þess, nýjum sem eldri, innilega til hamingju með daginn.“

Fossar fjárfestingarbanki og Landsbankinn voru sameiginlegir umsjónaraðilar útboðsins.