6. nóvember 2026

Hlutafjárútboð Bláa Lónsins

Í tengslum við almennt hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf. og umsókn um töku allra hluta félagsins til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hefur Bláa Lónið birt lýsingu, dagsetta 5. nóvember 2026, sem samanstendur af samantekt, útgefandalýsingu og verðbréfalýsingu. Fossar fjárfestingarbanki hf. og Landsbankinn hf. hafa umsjón með útboðinu.

Lýsinguna og fjárfestakynninguna, ásamt frekari upplýsingum um skilmála útboðsins, má finna hér.

Opinn kynningarfundur

Bláa Lónið hf. býður til opins kynningarfundar í tengslum við almennt hlutafjárútboð félagsins. Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 10. nóvember í Hörpu og er öllum opinn, auk þess sem honum verður streymt. Beint vefstreymi verður aðgengilegt á vefsíðu Bláa Lónsins, www.blaalonidhf.is/fjarfestar.

Um Bláa Lónið hf.

Bláa Lónið hf. er íslenskt hlutafélag sem sinnir rekstri, þróun og markaðssetningu á heilsu- og vellíðunarþjónustu. Félagið sérhæfir sig í rekstri áfangastaða á heimsmælikvarða sem byggja á hönnun, gæðum, einstökum eiginleikum íslenskrar náttúru og áratuga reynslu. Þeirra á meðal er Bláa Lónið, eitt þekktasta baðlón heimsins, The Retreat, Silica Hotel og Highland Base Kerlingarfjöll, baðlón Fontana við Laugarvatn og Blue Lagoon Skin Science, alþjóðlegt húðvörumerki sem byggir á áratuga rannsóknum og einstökum innihaldsefnum úr jarðsjó Bláa Lónsins.

Bláa Lónið hf. hefur einnig gert samning um kaup á öllu hlutafé í Arctic Adventures hf., sem er leiðandi upplifunar- og ævintýraferðaþjónustufyrirtæki. Allir fyrirvarar vegna kaupanna hafa verið uppfylltir og verður félagið því hluti af samstæðunni fyrir lok nóvember. Bláa Lónið hf. vinnur einnig að umfangsmikilli uppbyggingu í Þjórsárdal, þar sem Fjallaböðin, Mountain Retreat og Gestastofa munu rísa, auk þróunar nýs baðlóns og hótels á Hoffelli. Bláa Lónið á jafnframt hluti í völdum áfangastöðum víða um land: Jarðböðunum við Mývatn, Vök á Egilsstöðum og Sjóböðunum á Húsavík.

Nánari upplýsingar

Fyrir frekari upplýsingar getur þú haft samband við Fossa fjárfestingarbanka hf. á netfangið bl@fossar.is eða í síma 522-4000.