1. júlí 2026

Fossar söluráðgjafi vegna skráningar Styrkás í kauphöll Íslands

Gengið hefur verið frá ráðningu Fossa fjárfestingarbanka ásamt Acro verðbréfum og Kviku banka sem söluráðgjafa í tengslum við fyrirhugaða skráningu hlutabréfa Styrkás á Aðalmarkað Nasdaq Iceland. Þá hefur Landsbankinn verið ráðinn sem umsjónaraðili. Stefnt er að skráningu félagsins á öðrum ársfjórðungi 2027.

Hlutverk söluráðgjafa er að veita ráðgjöf við kynningu og fyrirkomulag útboðs ásamt því að aðstoða við sölu hlutafjár í tengslum við skráningu félagsins í kauphöll í samvinnu við umsjónaraðila.

Um Styrkás

Styrkás hf. er rekstrarfélag stofnað árið 2022. Dótturfélög Styrkás eru Skeljungur, Klettur, Stólpi og Hreinsitækni, sem saman mynda samstæðu félagsins.

Styrkás er leiðandi þjónustufyrirtæki á fyrirtækjamarkaði með styrk til að þjónusta innviða- og atvinnuvegafjárfestingu á Íslandi. Félagið byggir á fjórum kjarnasviðum: orku og efnavöru, tækjum og búnaði, eignaumsýslu og leigustarfsemi og umhverfis-og iðnaðarþjónustu.