11. nóvember 2026

Fossar gera samning um viðskiptavakt við Oculis

Fossar fjárfestingarbanki hefur undirritað samning við Oculis Holding AG um viðskiptavakt á útgefnum hlutabréfum félagsins sem skráð eru á aðalmarkað Nasdaq Iceland. Tilgangur samninganna er að efla viðskipti með hlutabréf Oculis í Kauphöllinni í því skyni að stuðla að því að seljanleiki hlutabréfa Oculis aukist, markaðsverð skapist og verðmyndun hlutabréfanna verði sem skilvirkust og gagnsæjust.

Fossar hafa skuldbundið sig til að leggja fram bæði reglubundin og fyrirsjáanleg kaup- og sölutilboð í hlutabréf félagsins í viðskiptakerfi Kauphallarinnar, á hverjum viðskiptadegi, bæði áður en Kauphöllin opnar og á meðan viðskipti eiga sér stað.

Verðbil kaup- og sölutilboða skal ákvarðað með hliðsjón af verðskrefatöflu Kauphallarinnar eins og hún er hverju sinni, á þann veg að verðbil verði sem næst 1,5% en þó ekki lægra en 1,45%. Fossar skulu tryggja að 50 hlutir hið minnsta séu á hverjum tíma innan 1,5% verðbils. Þó er Fossum heimilt að setja fram kaup- og sölutilboð með lægra verðbili en að framan greinir við sérstakar aðstæður, t.d. í tengslum við breytingar á verðskrefatöflu Kauphallarinnar.

Samkvæmt samningi er Fossum heimilt að auka hámarksverðbil í 3,0% ef verðbreyting á hlutabréfum Oculis innan sama viðskiptadags erumfram 5,0%. Skyldur um hámarksmun kaup- og sölutilboða falla niður innan viðskiptadags ef viðskipti í gegnum veltubók (markaðsvakt) Fossa fjárfestingarbanka með hluti Oculis nema samtals fimmfaldri lágmarksstærð tilboða eða 2.000 hlutum, hvort sem fyrr verður.

Samningurinn er ótímabundinn og tók gildi í gær, þann 10. nóvember 2026.

Nánari upplýsingar veitir:

Rúnar Friðriksson
Sími: 522-4000
Netfang: runar.fridriksson@fossar.is