Guðrún Gígja Sigurðardóttir hefur verið ráðin yfirlögfræðingur Fossa fjárfestingarbanka hf. en hún hefur starfað á lögfræðisviði Fossa frá árinu 2018.
Guðrún Gígja er með grunn- og meistarapróf í lögfræði frá Háskóla Íslands og LL.M.-gráðu frá Columbia Law School í New York, með sérhæfingu í félagarétti og fjármálamörkuðum. Guðrún Gígja hefur jafnframt starfað sem stundakennari í samningarétti við lagadeild Háskóla Íslands.
„Ég er þakklát fyrir það traust sem mér er sýnt með því að fela mér hlutverk yfirlögfræðings Fossa. Það hefur verið bæði lærdómsríkt og gefandi að taka þátt í þeirri uppbyggingu sem átt hefur sér stað hjá félaginu síðustu ár og ég hlakka til að halda áfram því starfi með frábæru teymi samstarfsfélaga. Fjármálamarkaðir eru í örri þróun, bæði hvað varðar regluverk og tækifæri, og það er spennandi áskorun að styðja við áframhaldandi vöxt Fossa á traustum lagalegum grunni,“ segir Guðrún Gígja Sigurðardóttir, nýr yfirlögfræðingur Fossa.
Þórunn Ólafsdóttir, sem gegnt hefur stöðu yfirlögfræðings Fossa, hefur ráðið sig í starf yfirlögfræðings hjá Íslandsbanka.
„Við erum gríðarlega ánægð með að Guðrún Gígja taki við hlutverki yfirlögfræðings Fossa. Hún hefur á undanförnum árum sýnt fram á djúpa þekkingu á félagarétti og fjármálamörkuðum, öfluga fagmennsku og frábæra hæfni í lausnamiðaðri ráðgjöf. Ráðning hennar er mikilvægur liður í áframhaldandi styrkingu innviða Fossa. Jafnframt vil ég þakka Þórunni Ólafsdóttur kærlega fyrir afar farsæl og fagleg störf í þágu Fossa og óska henni velfarnaðar í nýju hlutverki hjá Íslandsbanka” segir Brynjar Þór Hreinsson, forstjóri Fossa fjárfestingarbanka hf.