22. nóvember 2017

Yucaipa ræður Fossa markaði og Deutsche Bank sem ráðgjafa

Árið 2009 tóku Yucaipa Companies (“Yucaipa”) þátt í farsælli fjárhagslegri endurskipulagningu Eimskipafélags Íslands og aðstoðuðu Eimskip við skráningu félagsins á hlutabréfamarkað árið 2012.

Nú átta árum síðar hefur Yucaipa ákveðið að leggja mat á stöðu sína sem hluthafi í Eimskip, m.t.t. áframhaldandi eignarhalds eða mögulegrar sölu á hlut sínum í heild eða að hluta.

Yucapia hefur ráðið Deutsche Bank AG og Fossa markaði hf. sem ráðgjafa.

Ákvörðun um framhaldið, kann að fela í sér sölu alls hlutafjár eða hluta þess, annað hvort í útboði eða með beinum viðskiptum. Allar ákvarðanir Yucaipa um sölu verða háðar aðstæðum á fjármálamörkuðum og í efnahagsumhverfinu almennt.

Yucaipa Companies, er eigandi 25,3% hlutafjár í Eimskipum.