7. nóvember 2025

Fossar ráðgjafi Styrkáss við kaup á Hreinsitækni

Styrkás hf. undirritaði í gær samning um kaup á öllu hlutafé í Hreinsitækni ehf., HRT þjónustu ehf. og tengdum félögum. Kaupsamningurinn er háður hefðbundnum fyrirvörum, þ.á m. um samþykki Samkeppniseftirlits.

Samstæða Hreinsitækni er leiðandi í umhverfis- og innviðaþjónustu fyrir sveitarfélög og fyrirtæki. Velta samstæðunnar árið 2024 nam um 5 ma.kr. og hagnaður eftir afskriftir (EBIT) var um 800 m.kr. Styrkás bætir með þessum kaupum við fjórða tekjusviði sínu, á sviði umhverfis- og iðnaðarþjónustu. Sameinað félag mun hafa tæplega 70 milljarða króna árlega veltu og munu kaupin skapa tækifæri til að styrkja þjónustuframboð Styrkáss samstæðunnar, m.a. til stóriðju og sveitarfélaga auk uppbyggingar nýrra tekjustoða í innviðaþjónustu.

Heildarvirði (e. enterprise value) samstæðunnar í viðskiptunum er um 9,7 ma.kr. og kaupverð alls hlutafjár um 7 ma.kr. þar sem 25% kaupverðs verður greitt með reiðufé og 75% kaupverðs greitt með útgáfu nýrra hluta í Styrkási á genginu 24,5 kr. á hlut. Virði hlutafjár sameinaðs félags eftir viðskiptin er um 30 milljarðar króna.

Fyrirtækjaráðgjöf Fossa fjárfestingarbanka var ráðgjafi Styrkáss í ferlinu og óskar stjórnendum og hluthöfum beggja félaga til hamingju með viðskiptin.