25. nóvember 2025

Fossar fjárfestingarbanki hf.: Niðurstaða útboðs víxla 24. nóvember 2025

Fossar fjárfestingarbanki hf. lauk víxlaútboði í gær, 24. nóvember 2025. Bankanum bárust tilboð að nafnverði 940 m.kr. á bilinu 8,30% – 8,41% flötum vöxtum. 

Samþykkt tilboð í 6 mánaða víxlaflokkinn FOS 26 0528 voru samtals 940 m.kr. á 8,41% flötum vöxtum. 

Umsjón með útboðinu höfðu markaðsviðskipti Fossa fjárfestingarbanka.  

Sótt verður um töku víxlanna til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Uppgjörsdagur viðskiptanna er 28. nóvember 2025. 

 

Nánari upplýsingar: 

Arnar Friðriksson
Fossar fjárfestingarbanki
Sími: 865-8101
Netfang:arnar.fridriksson@fossar.is 

Ásgrímur Gunnarsson
Fossar fjárfestingarbanki
Sími: 832-4040
Netfang: asgrimur.gunnarsson@fossar.is