Fossar markaðir hf. voru með sterka hlutdeild í kauphöllinni á fyrsta fjórðungi 2017, í viðskiptum með bæði skuldabréf og hlutabréf. Fossar voru einnig umsvifamiklir í Kauphöllinni í mars einum og sér.
Fossar voru leiðandi í tilkynntum viðskiptum á fyrsta ársfjórðungi með 15,8% hlutadeild í skuldabréfum og 18,6% í hlutabréfum.
Hlutdeild Fossa markaða í tilkynntum viðskiptum í mars var 11,1% í skuldabréfum og 18,5% í hlutabréfum og samsvarandi 12,3% og 14,6% í öllum viðskiptum. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði nam 341 milljörðum króna í mars, þar af var hlutdeild seðlabankans 120 milljarða vegna uppgjörs við eigendur aflands króna. Heildarvelta á hlutabréfamarkaði nam 99 milljörðum í mánuðinum.