Guðmundur Björnsson

Guðmundur Björnsson

Forstöðumaður
Lánasvið

Guðmundur er forstöðumaður lánasviðs hjá Fossum fjárfestingarbanka.

Guðmundur hefur langa reynslu af störfum á  fjármálamarkaði. Áður en hann gekk til liðs við Fossa fjárfestingarbanka árið 2024 þá starfaði hann sem framkvæmdastjóri Glyms eignastýringar. Áður en hann stofnaði Glym eignastýringu í maí 2021 starfaði hann sem áhættustjóri Kviku eignastýringar hf. frá 2020.
Á árunum 2008-2020 var hann framkvæmdastjóri rekstrarsviðs og áhættustýringar hjá GAMMA Capital Management. Á árunum 2002 til 2008 starfaði hann í afleiðuviðskiptum, fyrst hjá Búnaðarbankanum seinna Kaupþingi, fyrst sem sérfræðingur og frá 2006 sem forstöðumaður afleiðuviðskipta Kaupþings.

Guðmundur er með B.Sc gráðu í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og hefur einnig lokið námi í verðbréfaviðskiptum.