21. febrúar 2018

Olaf Rogge í ráðgjafaráð Fossa markaða

—Sérfræðingur í alþjóðlegum fjárfestingum gengur til liðs við Fossa markaði

Olaf Rogge, sérfræðingur í alþjóðlegum fjárfestingum, gengur til liðs við ráðgjafarnefnd Fossa markaða og mun styðja félagið í tengslum við vaxandi þjónustu þess á erlendum mörkuðum.

„Það gleður okkur mjög að Olaf gangi til liðs við okkur, en liðsinni hans styrkir áframhaldandi vöxt og uppbyggingu á þjónustu Fossa á alþjóðavísu,“ segir Haraldur Þórðarson, forstjóri Fossa markaða. „Rogge býr að áratugareynslu af fjárfestingum á heimsmörkuðum og nýtur mikillar virðingar fyrir skilning sinn á þróun og samhengi efnahagsstærða á alþjóðlegum mörkuðum.“

Frá 1984 byggði Rogge upp fyrirtækið sem hann stofnaði undir eigin nafni, Rogge Global Partners Ltd. Félagið sérhæfði sig í stýringu fjárfestinga á alþjóðlegum vaxtamörkuðum og var með yfir 60 milljarða Bandaríkjadala í stýringu áður en kom að sölu þess til Allianz Global Investors árið 2016.

Áður hafði hann gegnt margvíslegum stjórnunarstöðum hjá svissneska bankanum Lombard Odier og hjá LF Rothschild, Unterberg, Towbin.

Olaf Rogge, sem er fæddur 1945, útskrifaðist með réttindi sem bankastjórnandi úr háskólanum í Hamborg í Þýskalandi árið 1973.