20. apríl 2026

Magnús Ingi nýr stjórnarformaður Fossa fjárfestingarbanka

Magnús Ingi Einarsson er nýr formaður stjórnar Fossa fjárfestingarbanka. Hann býr að áratugareynslu af fjármálamarkaði. Frá árinu 2022 hefur hann gegnt starfi fjármálastjóra hjá SKEL, en áður gegndi hann margvíslegum stjórnendastöðum hjá Kviku banka og forverum hans allt frá árinu 2006.

„Það er bæði gefandi og spennandi að taka við formennsku í stjórn Fossa á þessum tímapunkti,“ segir Magnús Ingi. „Stjórnendur og starfsmenn Fossa hafa á skömmum tíma byggt upp öfluga fjárfestingarbankaþjónustu og sterka stöðu á markaði. Ég hlakka til að vinna með teyminu að því að styrkja enn frekar stoðir félagsins og styðja við áframhaldandi vöxt bankans.“

Magnús Ingi er með meistaragráðu í vélaverkfræði frá Virginia Tech í Bandaríkjunum og BS gráðu í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands.

Fossar eru dótturfélag Skaga hf., ásamt VÍS tryggingum og Íslenskum verðbréfum.