Íbúðafélagið Ívera ehf. lauk í gær, 2. júní 2026, sölu á nýjum skuldabréfaflokkum IVERA090631 og IVERA090637, sem gefnir eru út undir 25.000.000.000 útgáfuramma félagsins.
IVERA090631 er verðtryggður vaxtagreiðsluflokkur til 5 ára og greiðir vexti tvisvar á ári með lokagjalddaga 9. júní 2031. Skuldabréf í flokknum eru veðtryggð samkvæmt almennu tryggingafyrirkomulagi félagsins.
Heildartilboð í IVERA090631 námu samtals 4.600 m.kr. að nafnvirði, þar sem ávöxtunarkrafa var á bilinu 3,94-4,30%. Tilboðum að fjárhæð 2.100 m.kr. að nafnvirði var tekið á ávöxtunarkröfunni 4,15%.
IVERA090637 er verðtryggður vaxtagreiðsluflokkur til 11 ára og greiðir vexti tvisvar á ári með lokagjalddaga 9. júní 2037. Skuldabréf í flokknum eru veðtryggð samkvæmt almennu tryggingafyrirkomulagi félagsins.
Heildartilboð í IVERA090637 námu samtals 2.480 m.kr. að nafnvirði, þar sem ávöxtunarkrafa var á bilinu 3,57-3,75%. Tilboðum að fjárhæð 2.180 m.kr. að nafnvirði var tekið á ávöxtunarkröfunni 3,74%.
Niðurstaða skiptiútboðs leiðir til þess að endurkaup á HEIM070826 nema 1.317 m.kr. að markaðsvirði.
Útboðið var undanþegið gerð lýsingar á grundvelli c og d-liðar, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði og 1. mgr. 3. gr. laga nr. 14/2020 um sama efni.
Stefnt er að uppgjöri viðskiptanna þriðjudaginn 9. júní nk. og verður óskað eftir því að nýju bréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í kjölfarið.
Fossar fjárfestingarbanki hf. hafði umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og fyrirhugaðri töku þeirra til viðskipta hjá Nasdaq Iceland.
Nánari upplýsingar veita:
Arnar Geir Sæmundsson, Fossar fjárfestingarbanki hf.,
netfang: arnar.saemundsson@fossar.is
Ásgrímur Gunnarsson, Fossar fjárfestingarbanki hf.,
netfang asgrimur.gunnarsson@fossar.is
Egill Lúðvíksson, Ívera ehf.,
netfang: egill@ivera.is