Fossar markaðir hf. auka umsvif sín í Kauphöllinni í júlí, í tilkynntum viðskiptum með bæði skuldabréf og hlutabréf.
Hlutdeild Fossa markaða í tilkynntum viðskiptum í júlí var 19,3% í skuldabréfum og 25,1% í hlutabréfum og samsvarandi 13,8% og 17,5% í öllum viðskiptum. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði nam 60 milljörðum króna. Heildarviðskipti á hlutabréfamarkaði námu 35 milljörðum í mánuðinum.