1. mars 2023

Fossar stærstir í viðskiptum með skuldabréf það sem af er ári

Það sem af er ári eru Fossar fjárfestingarbanki hf. umfangsmestir í öllum viðskiptum með skuldabréf, með 20,3% hlutdeild.

Fossar voru með næst mestu hlutdeild í öllum viðskiptum með skuldabréf og hlutabréf í febrúar.

Hlutdeild Fossa í öllum viðskiptum í febrúar var 18,5% í skuldabréfum og 15,4% í hlutabréfum.

Heildarvelta í febrúar nam 340 milljörðum króna í skuldabréfum og 176 milljörðum króna í hlutabréfum. Það sem af er ári nemur velta í tilkynntum viðskiptum 54% af heild í skuldabréfum og 72,1% í hlutabréfum.