1. september 2021

Fossar stærstir í tilkynntum viðskiptum með skuldabréf í ágúst

Fossar markaðir hf. voru stærstir í tilkynntum viðskiptum í skuldabréfum í ágúst.

Hlutdeild Fossa markaða í tilkynntum viðskiptum í ágúst var 31,6% í skuldabréfum og 19,8% í hlutabréfum og samsvarandi 23,9% og 16,8% í öllum viðskiptum.

Það sem af er ári eru Fossar markaðir umfangsmestir í tilkynntum viðskiptum með bæði skuldabréf og hlutabréf með 23,0% hlutdeild í skuldabréfum og 30,5% hlutdeild í hlutabréfum.

Heildarvelta í ágúst nam 151 milljörðum króna í skuldabréfum og 162 milljörðum króna í hlutabréfum. Það sem af er ári nemur velta í tilkynntum viðskiptum 62,7% af heild í skuldabréfum og 74,4% í hlutabréfum.