12. desember 2023

Fossar sjá um útboð á grænum skuldabréfum OR í dag

Orkuveita Reykjavíkur efnir til útboðs á skuldabréfum í dag, þriðjudaginn 12. desember 2023. Boðnir verða til sölu grænu skuldabréfaflokkarnir OR161126 GB, OR020934 GB og OR180255 GB.

OR161126 GB er óverðtryggður skuldabréfaflokkur með vaxtagreiðslufyrirkomulagi og ber 7,0% vexti sem greiðast fjórum sinnum á ári fram að lokagjalddaga þann 16. nóvember 2026. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 720m kr. í flokknum. 

OR020934 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 2.september 2034. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 21.127m kr. í flokknum. 

OR180255 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 18. febrúar 2055. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 27.281 mkr. í flokknum. 

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf. 

Skila skal inn tilboðum á netfangið utbod@fossar.is fyrir klukkan 17:00 í dag, þriðjudaginn 12. desember 2023. Uppgjör viðskipta fer fram þriðjudaginn 19. desember 2023. 

Nánari upplýsingar veita:  

Matei Manolescu
Markaðsviðskiptum Fossa fjárfestingarbanka
Sími: 522 4008
Netfang: matei.manolescu@fossar.is

Brynja Kolbrún Pétursdóttir
Framkvæmdastjóri Fjármála OR
Sími: 516-6100
Netfang: Brynja.Kolbrun.Petursdottir@or.is