14. maí 2024

Fossar sjá um útboð á grænum skuldabréfum OR í dag

Orkuveita Reykjavíkur efnir til útboðs á skuldabréfum í dag, þriðjudaginn 14. maí 2024. Boðnir verða til sölu grænu skuldabréfaflokkarnir OR020934 GB og OR180255 GB.

OR020934 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 2. september 2034. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 24.262 m.kr. í flokknum.

OR180255 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 18. febrúar 2055. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 31.736 m.kr. í flokknum.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.

Skila skal inn tilboðum á netfangið utbod@fossar.is fyrir klukkan 17:00 í dag, þriðjudaginn 14. maí 2024. Uppgjör viðskipta fer fram þriðjudaginn 21. maí 2024.

Nánari upplýsingar veita:

Snorri Hafsteinn Þorkelsson
Framkvæmdastjóri Fjármála Orkuveitunnar
Sími: 516 6100
Netfang: snorri.hafsteinn.thorkelsson@or.is

Matei Manolescu
Markaðsviðskiptum Fossa fjárfestingarbanka
Sími: 522 4008
Netfang: matei.manolescu@fossar.is