Fossar mynd 2
19. júní 2023

Fossar sjá um útboð á grænum skuldabréfum OR á morgun

Orkuveita Reykjavíkur efnir til útboðs á skuldabréfum þriðjudaginn 20. júní 2023. Boðnir verða til sölu grænu skuldabréfaflokkarnir OR020934 GB og OR180255 GB.
OR020934 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 2.september 2034. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 17.747 mkr. í flokknum. 

OR0180255 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 18. febrúar 2055. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 25.201 mkr. í flokknum. 

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.  

Skila skal inn tilboðum á netfangið utbod@fossar.is fyrir klukkan 17:00 á morgun, þriðjudaginn 20. júní 2023. Uppgjör viðskipta fer fram miðvikudaginn 28. júní 2023. 

Nánari upplýsingar veita:  

Benedikt K. Magnússon
Framkvæmdastjóri Fjármála OR
Sími: 516-6100
Netfang: benediktk@or.is  

Matei Manolescu
Markaðsviðskiptum Fossa fjárfestingarbanka
Sími: 522 4008
Netfang: matei.manolescu@fossar.is