10. júní 2024

Fossar sjá um útboð á grænum skuldabréfum OR á morgun

Orkuveita Reykjavíkur (Orkuveitan) efnir til útboðs á skuldabréfum þriðjudaginn 11. júní 2024. Boðnir verða til sölu grænu skuldabréfaflokkarnir OR020934 GB og OR180255 GB.


OR020934 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 2. september 2034. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 27.042 m.kr. í flokknum.


OR180255 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 18. febrúar 2055. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 32.346 m.kr. í flokknum.


Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.


Skila skal inn tilboðum á netfangið utbod@fossar.is fyrir klukkan 17:00 á morgun, þriðjudaginn 11. júní 2024. Uppgjör viðskipta fer fram þriðjudaginn 18. júní 2024.

Nánari upplýsingar veita: 

Snorri Hafsteinn Þorkelsson
Framkvæmdastjóri fjármála Orkuveitunnar
Sími: 516-6100
Netfang: snorri.hafsteinn.thorkelsson@or.is

Matei Manolescu
Markaðsviðskiptum Fossa fjárfestingarbanka
Sími:522-4008
Netfang: matei.manolescu@fossar.is