15. maí 2023

Fossar sjá um skuldabréfaútboð fyrir OR á morgun

Orkuveita Reykjavíkur efnir til útboðs á skuldabréfum á morgun, þriðjudaginn 16. maí 2023. Boðnir verða til sölu grænu skuldabréfaflokkarnir OR020934 GB og OR180255 GB.

OR020934 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 2. september 2034. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 14.577 milljónir kr. í flokkinum.

OR0180255 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 18. febrúar 2055. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 23.221 milljónir kr. í flokkinum.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.

Skila skal inn tilboðum á netfangið utbod@fossar.is fyrir klukkan 17:00 á morgun, þriðjudaginn 16. maí 2023. Uppgjör viðskipta fer fram miðvikudaginn 24. maí 2023.

Nánari upplýsingar veita: 

Benedikt K. Magnússon
Framkvæmdastjóri Fjármála OR
Sími: 516-6100
benedikt.k.magnusson@or.is

Matei Manolescu
Markaðsviðskiptum Fossa fjárfestingarbanka
Sími: 522-4008
matei.manolescu@fossar.is