30. mars 2023

Fossar sáu um útboð á grænum skuldabréfum OR

Lokuðu útboði á grænum skuldabréfum Orkuveitu Reykjavíkur lauk í gær, 30. mars 2023. Gefin voru út skuldabréf í skuldabréfaflokkunum OR020934 GB og OR180255 GB.

OR020934 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 2. september 2034. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði kr. 12.617 milljónir í flokknum.

Heildartilboð í flokkinn voru samtals 2.160 m.kr. að nafnvirði, þar sem ávöxtunarkrafa var á bilinu 3,17% – 3,35%. Tilboðum að fjárhæð 1.960 m.kr. að nafnvirði var tekið á ávöxtunarkröfunni 3,24%.

OR0180255 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 18. febrúar 2055. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði kr. 22.601 milljónir í flokknum.

Heildartilboð í flokkinn voru samtals 820 m.kr. að nafnvirði, þar sem ávöxtunarkrafa var á bilinu 2,99% – 3,15%. Tilboðum að fjárhæð 620 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 3,04%.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.

 

Nánari upplýsingar:

Benedikt K. Magnússon
Framkvæmdastjóri Fjármála OR
Sími: 516 6100
Netfang: benedikt.kjartan.magnusson@or.is

Matei Manolescu
Markaðsviðskiptum Fossa fjárfestingarbanka
Sími: 522 4008
Netfang: matei.manolescu@fossar.is