1. september 2022

Fossar með mesta hlutdeild í ágúst

Fossar fjárfestingarbanki hf. var stærstur í tilkynntum viðskiptum með skuldabréf og hlutabréf í ágúst.

Hlutdeild Fossa í tilkynntum viðskiptum í ágúst var 35,1% í skuldabréfum og 23,0% í hlutabréfum og samsvarandi 23,8% og 18,2% í öllum viðskiptum.

Það sem af er ári eru Fossar umfangsmestir í tilkynntum viðskiptum með skuldabréf, með 22,6% hlutdeild í skuldabréfum og 15,1% hlutdeild í hlutabréfum.

Heildarvelta í ágúst nam 262 milljörðum króna í skuldabréfum og 142 milljörðum króna í hlutabréfum. Það sem af er ári nemur velta í tilkynntum viðskiptum 57,7% af heild í skuldabréfum og 73,9% í hlutabréfum.