6. apríl 2021

Fossar markaðir stærstir í mars

Fossar markaðir hf. voru stærstir í tilkynntum viðskiptum í bæði hlutabréfum og skuldabréfum í mars.

Hlutdeild Fossa markaða í tilkynntum viðskiptum í mars var 19,5% í skuldabréfum og 51,0% í hlutabréfum og samsvarandi 15,2% og 41,6% í öllum viðskiptum.

Það sem af er ári eru Fossar markaðir umfangsmestir í tilkynntum viðskiptum með bæði skuldabréf og hlutabréf með 21,7% hlutdeild í skuldabréfum og 41,1% hlutdeild í hlutabréfum.

Heildarvelta í mars nam 183 milljörðum króna í skuldabréfum og 183 milljörðum króna í hlutabréfum. Það sem af er ári nemur velta í tilkynntum viðskiptum 61,1% af heild í skuldabréfum og 77,5% í hlutabréfum.