12. apríl 2021

Fossar markaðir ljúka skuldabréfaútboði fyrir OR

Lokuðu útboði á grænum skuldabréfum Orkuveitu Reykjavíkur lauk 8. apríl 2021. Gefin voru út skuldabréf í nýjum flokki, OR180242 GB.

Flokkurinn er óverðtryggður með föstum vöxtum og jöfnum afborgunum tvisvar á ári fram að lokagjalddaga þann 18. febrúar 2042.

Heildartilboð í flokkinn voru samtals 5.049 m.kr. að nafnvirði, þar sem ávöxtunarkrafa var á bilinu 3,99% – 4,65%.

Tilboðum að fjárhæð 2.198 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 4,35%.

Fossar markaðir hafa umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.

Nánari upplýsingar:

Ingvar Stefánsson
Framkvæmdastjóri Fjármála OR
Sími: 516-6100
Netfang: ingvar.stefansson@or.is

Matei Manolescu
Fossar markaðir
Sími: 522-4008
Netfang: matei.manolescu@fossar.is