18. október 2023

Fossar ljúka víxlaútboði fyrir Símann

Síminn hf. lauk í gær útboði á nýjum 6 mánaða víxlaflokki SIMINN240423.

Heildartilboð í flokkinn námu samtals 2.160 m.kr. að nafnvirði á flötu vöxtunum 10,10-10,50%.

Tilboðum að fjárhæð 1.400 m.kr. að nafnvirði var tekið á 10,31% flötum vöxtum.

Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er 24. október 2023. Stefnt er að töku til viðskipta á Nasdaq Iceland í kjölfarið.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu víxlanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland.

Nánari upplýsingar veita: 

Ásgrímur Gunnarsson
Markaðsviðskipti
Fossar fjárfestingarbanki
sími: 522 4000
Netfang: asgrimur.gunnarsson@fossar.is

Óskar Hauksson
Fjármálastjóri
Netfang: oskarh@siminn.is

Helgi Þorsteinsson
Forstöðumaður fjárstýringar
Netfang: helgith@siminn.is