20. janúar 2023

Fossar ljúka víxlaútboði fyrir Haga

Hagar hf. luku í gær útboði á nýjum 5 mánaða víxlaflokki HAGA230622.

Heildartilboð í flokkinn námu samtals 1.720 m.kr. að nafnvirði á flötu vöxtunum 7,10% – 7,50%.

Tilboðum að fjárhæð 1.080 m.kr. var tekið á 7,25% flötum vöxtum.

Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er 26. janúar 2023. Stefnt er að töku til viðskipta á Nasdaq Iceland.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hafði umsjón með útgáfu og sölu víxlanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland.

Nánari upplýsingar veita:

Matei Manolescu
Fossar fjárfestingabanki
Sími: 522-4000
Netfang: matei.manolescu@fossar.is

Guðrún Eva Gunnarsdóttir
Framkvæmdastjóri fjármálasviðs Haga
Netfang: geg@hagar.is