24. mars 2023

Fossar ljúka víxlaútboði fyrir Haga

Hagar hf. luku í gær útboði á nýjum 6 mánaða víxlaflokki HAGA230928.

Heildartilboð í flokkinn námu samtals 2.660 m.kr. að nafnvirði á flötu vöxtunum 8,80-9,20%.

Tilboðum að fjárhæð 1.400 m.kr. að nafnvirði var tekið á 8,98% flötum vöxtum.

Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er 30. mars 2023. Stefnt er að töku til viðskipta á Nasdaq Iceland.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hafði umsjón með útgáfu og sölu víxlanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland.

Nánari upplýsingar veita:

Matei Manolescu
Fossar fjárfestingabanki hf.
matei.manolescu@fossar.is
s: 522 4000

Arnar Geir Sæmundsson
Fossar fjárfestingabanki hf.
arnar.saemundsson@fossar.is

Guðrún Eva Gunnarsdóttir
Hagar hf.
Framkvæmdastjóri fjármálasviðs
geg@hagar.is