13. febrúar 2025

Fossar gera samning um viðskiptavakt við Íslandsbanka

Fossar fjárfestingarbanki hefur undirritað samning við Íslandsbanka um viðskiptavakt á útgefnum hlutabréfum félagsins sem eru skráð á aðalmarkað Nasdaq Iceland.

Fossar hafa skuldbundið sig til að leggja fram bæði reglubundin og fyrirsjáanleg kaup- og sölutilboð í hlutabréf félagsins í viðskiptakerfi Kauphallarinnar, á hverjum viðskiptadegi, bæði áður en Kauphöllin opnar og á meðan viðskipti eiga sér stað.

Fjárhæð kaup- og sölutilboða skal vera að lágmarki 112.500 kr. að nafnvirði á gengi sem Fossar ákveða.

Slíkt tilboð skal þó ekki víkja meira en 3% frá síðasta skráðu viðskiptaverði í Kauphöllinni.  Eigi Fossar viðskipti með hluti Íslandsbanka innan sama viðskiptadags sem nema samtals 675.000 kr. að nafnvirði eða meira, falla niður skyldur Fossa um hámarksmun kaup- og sölutilboða innan þess dags. Verðbil kaup- og sölutilboða skal ákvarðað með hliðsjón af verðskrefatöflu Kauphallarinnar eins og hún er hverju sinni, á þann veg að verðbil verði sem næst 1,5% en ef verðbreyting innan viðskiptadags er umfram 5,0% skal heimilt að auka hámarksverðbil í 3%.

Samningurinn tekur gildi frá og með 17. febrúar 2025

 

Nánari upplýsingar veitir:

Rúnar Friðriksson
Sími: 522-4000
Netfang: runar.fridriksson@fossar.is