22. febrúar 2023

Fossar fjárfestingarbanki hf.: Niðurstaða útboðs víxla

Fossar fjárfestingarbanki hf. lauk víxlaútboði í gær. Bankanum bárust 20 tilboð að nafnverði 1.460 m.kr. á bilinu 7,99% – 8,70% flötum vöxtum, þar sem vegnir meðalvextir voru 8,25%.

Samþykkt tilboð í 6 mánaða víxlaflokkinn FOS 23 0828 voru samtals 880 m.kr. á 8,20% flötum vöxtum. Heildarnafnverð flokksins stendur í 880 m.kr. eftir útgáfuna.

Umsjón með útboðinu hafði skuldabréfamiðlun Fossa fjárfestingarbanka.

Nánari upplýsingar:

Ottó Stefán Michelsen
Fossar fjárfestingarbanki
Sími: 832-4099
Netfang: otto.michelsen@fossar.is

Matei Manolescu
Fossar fjárfestingarbanki
Sími: 522-4008
Netfang: matei.manolescu@fossar.is