22. nóvember 2022

Fossar fjárfestingarbanki hf.: Niðurstaða útboðs víxla

Fossar fjárfestingarbanki hf. lauk víxlaútboði í gær. Bankanum bárust 9 tilboð að nafnverði 900 m.kr. á bilinu 7,20% – 7,53% flötum vöxtum, þar sem vegnir meðalvextir voru 7,40%.

Samþykkt tilboð í 6 mánaða víxlaflokkinn FOS 23 0522 voru samtals 820 m.kr. á 7,53% flötum vöxtum. Heildarnafnverð flokksins stendur í 820 m.kr. eftir útgáfuna.

Umsjón með útboðinu hafði skuldabréfamiðlun Fossa fjárfestingarbanka.

Nánari upplýsingar:

Ottó Stefán Michelsen
Fossar fjárfestingarbanki
Sími: 832-4099
Netfang: otto.michelsen@fossar.is

Matei Manolescu
Fossar fjárfestingarbanki
Sími: 522-4008
Netfang: matei.manolescu@fossar.is