Fossar mynd 2
15. maí 2023

Fossar fjárfestingarbanki efnir til víxlaútboðs í dag

Fossar fjárfestingarbanki hf. efnir til víxlaútboðs í dag, mánudaginn 15. maí.

Boðnir verða til sölu víxlar í 6 mánaða flokki FOS 23 1130 með lokagjalddaga þann 30. nóvember 2023. Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu samþykktu flötu vöxtum. Nafnverðseining víxlanna er 20 m.kr.

Tilboðum, þar sem fram koma upplýsingar um tilboðsfjárhæð og flata vexti, skal skilað til Fossa fjárfestingarbanka fyrir kl. 17:00 í dag, mánudaginn, 15. maí 2023, á netfangið utbod@fossar.is.

Uppgjörsdagur er 22. maí 2023, sem er jafnframt lokagjalddagi 820 m.kr. víxilsins FOS 23 0522. Niðurstaða útboðsins verður tilkynnt að loknu útboði.

 

Nánari upplýsingar:

Ottó Stefán Michelsen
Fjárstýring og eigin viðskipti
Fossar fjárfestingarbanki
Sími: 832-4099
Netfang: otto.michelsen@fossar.is

Ásgrímur Gunnarsson
Markaðsviðskipti
Fossar fjárfestingarbanki
Sími: 832-4040
Netfang: asgrimur.gunnarsson@fossar.is.