16. nóvember 2022

Fossar fjárfestingarbanki efnir til víxlaútboðs 21. nóvember nk.

Fossar fjárfestingarbanki hf. efnir til víxlaútboðs á mánudaginn, 21. nóvember næstkomandi.

Boðnir verða til sölu óskráðir víxlar í 6 mánaða flokki FOS 23 0522 með gjalddaga þann 22. maí 2023. Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu samþykktu flötu vöxtum.

Þetta er önnur víxlaútgáfa félagsins en þann 25. ágúst sl. voru gefnir út víxlar í flokknum FOS 23 0227 að fjárhæð 1.000 m.kr. á flötu vöxtunum 7,30% eða 0,96% álagi á sex mánaða REIBOR, þar sem heildareftirspurn nam 1.740 m.kr.

Félagið stefnir að því að taka tilboðum að fjárhæð allt að 1.000 m.kr. en áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Þá hyggst félagið verða virkur útgefandi á sex mánaða víxlum á þriggja mánaða fresti um ókomna tíð. Fyrirhugað er að gefa út fyrsta skráða víxil félagsins í maí 2023. Samhliða því munu Fossar gefa út grunnlýsingu fyrir frekari víxla- og skuldabréfaútgáfur.

Nánari upplýsingar:

Ottó Stefán Michelsen
Fossar fjárfestingarbanki
Sími: 832-4099
Netfang: otto.michelsen@fossar.is

Matei Manolescu
Fossar fjárfestingarbanki
Sími: 522-4008
Netfang: matei.manolescu@fossar.is