Fossar fjárfestingarbanki hélt hinn árlega Iceland Capital Markets Day á Claridge’s í London í gær, þar sem erlendum fjárfestum gafst kostur á að fræðast nánar um viðskiptaumhverfið á Íslandi og fjárfestingartækifæri. Bjarni Benediktsson, fyrrverandi forsætisráðherra og núverandi framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, fór yfir efnahagshorfur og helstu þætti sem móta viðskiptaumhverfið á Íslandi.
Fyrirtæki úr ýmsum geirum kynntu jafnframt starfsemi sína og einstök fjárfestingartækifæri: Sigríður Margrét Oddsdóttir frá Bláa lóninu, Jón Sigurðsson frá Stoðum og Haraldur Þórðarson frá Skaga tóku þar til máls.
Fossar vilja þakka fjárfestum í London kærlega fyrir komuna og framsögumönnunum fyrir áframhaldandi stuðning við kynningu á Íslandi sem áhugaverðum fjárfestingarkosti á erlendum vettvangi.