Stjórn Fossa fjárfestingarbanka hefur náð samkomulagi við Steingrím Arnar Finnsson, forstjóra félagsins, um starfslok. Brynjar Þór Hreinsson, fjármálastjóri Skaga, hefur verið ráðinn forstjóri Fossa, en hann tekur við starfinu frá og með næstu mánaðarmótum.
Steingrímur hefur gegnt starfi forstjóra Fossa frá því í október 2023 og er einn af stofnendum félagsins árið 2015. Hann mun vera félaginu áfram til ráðgjafar í þágu lykilviðskiptasambanda, þróunar viðskipta við erlenda aðila og annarrar tekjusköpunar félagsins.
Upp er runninn rétti tíminn fyrir mig til að segja skilið við forstjórastól Fossa fjárfestingarbanka. Ákvörðunin byggir bæði á rýni á stefnu Skaga og þeim áhuga mínum á að nýta krafta mína að hluta til annars konar verkefna,” segir Steingrímur.
„Við tekur nýtt og spennandi ráðgjafahlutverk fyrir Fossa með áherslu á uppbyggingu erlendra tengsla þar sem mikil tækifæri eru til sóknar. Þar kemur að góðum notum víðtækt tengslanet mitt heima og erlendis og reynsla eftir um rúmlega tuttugu ára samfelldan feril í fjárfestingarbankaþjónustu.“
Brynjar Þór Hreinsson, verðandi forstjóri Fossa, hefur starfað sem fjármálastjóri Skaga frá árinu 2023. Hann starfaði áður sem forstöðumaður eignastýringar Stapa lífeyrissjóðs frá árinu 2018. Þar áður var hann forstöðumaður sérhæfðra fjárfestinga hjá Íslenskum verðbréfum og forstöðumaður eignastýringar hjá Straumi fjárfestingarbanka.
„Ég er þakklátur því trausti sem mér er sýnt að taka við forstjórastöðu Fossa á þessum tímapunkti. Á sama tíma og bankanum hefur tekist að vaxa og byggja upp ný tekjusvið undanfarin ár þá er verkefnið að auka samningsbundnar tekjur bankans og bæta arðsemi,” segir Brynjar.
„Tækifæri eru fólgin í sérstöðu Fossa á fjármálamarkaði, þar sem styrkleikinn hefur ávallt legið í áherslunni á að vera besti milliliður fjármagns fyrir viðskiptavini. Markmiðið er að nýta þessa styrkleika Fossa og samstæðunnar í heild til að skapa aukið virði og betri þjónustu fyrir viðskiptavini. Hjá Fossum starfar öflugt starfsfólk og ég hlakka til að vinna með því og viðskiptavinum bankans í átt að þessu markmiði.”
Stjórn Fossa vill þakka Steingrími fyrir öflugt og farsælt samstarf á undanförnum árum og framlag hans til uppbyggingar félagsins og hlakkar til að vinna með Brynjari að áframhaldandi vexti og framgangi bankans.