5. júní 2026

Breyting á almennum viðskiptaskilmálum Fossa fjárfestingarbanka hf.

Við viljum vekja athygli á uppfærðum almennum viðskiptaskilmálum Fossa fjárfestingarbanka hf. Skilmálarnir hafa verið birtir á heimasíðu bankans og má nálgast þá hér. Uppfærðir skilmálar taka gildi samhliða birtingu á heimasíðu Fossa þann 5. Júní 2026.

Haldi viðskiptavinur áfram viðskiptum við Fossa eftir gildistöku uppfærðra skilmála telst viðskiptavinur hafa samþykkt breytingarnar. Sætti viðskiptavinur sig ekki við breytingu á skilmálum getur hann sagt upp viðskiptum sínum við bankann í samræmi við efni skilmálanna.

Helstu breytingar á almennum viðskiptaskilmálum eru eftirfarandi:

  • Bætt hefur verið inn skýru ákvæði um heimild Fossa til að miðla nauðsynlegum upplýsingum um viðskiptavini til Íslenskra verðbréfa hf. þegar viðskiptavinur nýtur þjónustu sem er veitt sameiginlega af félögunum, enda sé miðlunin nauðsynleg til að veita umsamda þjónustu.
  • Áréttað er að slík miðlun upplýsinga, þar á meðal upplýsinga sem kunna að falla undir bankaleynd, fer ávallt fram í samræmi við ákvæði laga um fjármálafyrirtæki um bankaleynd og laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, sem og persónuverndarstefnu Fossa.

 

Rétt er að hafa í huga að yfirlitið hér að ofan er ekki tæmandi og er sett fram í upplýsingaskyni. Ef misræmis gætir á milli yfirlitsins og þess sem fram kemur í uppfærðum viðskiptaskilmálum þá gilda skilmálarnir.

Hægt er að óska eftir frekari upplýsingum um framangreinda skilmála með því að senda tölvupóst á netfangið info@fossar.is.