24. nóvember 2016

Birna Hlín Káradóttir ráðin yfirlögfræðingur Fossa Markaða

Birna Hlín Káradóttir hefur verið ráðin yfirlögfræðingur hjá Fossum mörkuðum hf. og mun hefja störf í janúar.

Birna Hlín útskrifaðist með kandídatspróf í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2006. Frá árinu 2009 hefur hún gegnt starfi yfirlögfræðings, fyrst hjá Straumi-Burðarás svo Straumi fjárfestingabanka og nú síðast hjá sameinuðum banka MP og Straums. Enn fremur var Birna í framkvæmdastjórn Straums fjárfestingabanka. Áður hafði Birna Hlín starfað á lögfræðisviði Straums-Burðaráss og á einkabankasviði Landsbanka Íslands í skattaráðgjöf.

Birna Hlín er með próf í verðbréfaviðskiptum ásamt því að vera með lögmannsréttindi fyrir héraðsdómi.