Fossar markaðir höfðu umsjón með útboði Orkuveitu Reykjavíkur, sem lauk í gær, 23. október 2018.
Heildareftirspurn í útboðinu nam samtals 3.550 m. kr. að nafnverði.
Heildartilboð í flokkinn OR090546 voru samtals 720 m. kr. á bilinu 2,80% – 2,88%. Tilboðum að fjárhæð 420 m. kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 2,85%.
Heildartilboð í flokkinn OR090524 voru samtals 2.830 m. kr. á bilinu 2,55% – 2,85%. Tilboðum að fjárhæð 1.350 m. kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 2,60%.