Fyrirtækjaráðgjöf Fossa fjárfestingarbanka hefur verið falið að hafa umsjón með söluferli á Hlíðarveitu í Bláskógarbyggð fyrir hönd Veitna. Hlíðarveita rekur í dag hita- og kaldavatnsveitu sem þjónustar meðal annars sumarhúsabyggðir í Brekkuskógi, Miðhúsaskógi og í Úthlíð. Viðskiptavinir veitunnar eru um 290 talsins.
Leitað er eftir tilboðum í rúmlega helmingshlut Hlíðarveitu í borholunni ER-23 á Efri Reykjum auk þess er um að ræða allt dreifikerfið, dælustöðvar og annar búnaður sem fylgir veitunni. Hitaveitan þjónustar sumarhúsabyggðir í Brekkuskógi, Miðhúsaskógi og í Úthlíð auk þess að veita nokkrum býlum í nágrenninu heitt vatn. Þá hefur Hlíðarveita afnot af vatnsveitu Úthlíðar þar sem vatn er tekið úr lindum við Bjarnarfell. Vatnsveitan þjónustar sumarhúsahverfið í Úthlíð auk nokkurra húsa í Bláskógarbyggð í grennd við Úthlíð.
Áhugasömum kaupendum er bent á að hafa samband við fyrirtækjaráðgjöf Fossa í gegnum netfangið ftr@fossar.is. Fjárfestar fá sölukynningu ásamt frekari upplýsingum um skilmála söluferilsins afhent gegn undirritun trúnaðaryfirlýsingar ásamt upplýsingum um kaupanda og verður boðið að gera óskuldbindandi tilboð á grundvelli þeirra gagna.
Frestur til að skila óskuldbindandi tilboði er kl. 16:00 þann 1. mars 2024. Eingöngu verður tekið við tilboðum á sérstöku tilboðsformi og samkvæmt þeim skilmálum sem fram koma í skilmálabréfi og á tilboðsformi. Tilboðsform má nálgast hjá fyrirtækjaráðgjöf Fossa fjárfestingarbanka.