Venju samkvæmt velur starfsfólk Fossa fjárfestingarbanka málefni sem stutt er með söfnun Takk dagsins. Á Takk daginn renna allar þóknanatekjur bankans ásamt beinum framlögum frá viðskiptavinum til góðs málefnis.
Takk dagur Fossa fjárfestingarbanka fer fram í áttunda sinn í dag, 24. nóvember. „Þessi viðburður hefur vaxið í gegnum árin og er tilhlökkunarefni í hvert sinn. Við fögnum tækifærinu til að geta, í samstarfi við viðskiptavini og samstarfsaðila, staldrað við og þakkað fyrir það sem vel er gert,“ segir Haraldur Þórðarson, forstjóri Fossa fjárfestingarbanka.
Á hverju ári velur starfsfólk Fossa málefni til að styðja og í ár eru það Píeta samtökin. „ Að þessu sinni rennur afrakstur dagsins til þess góða starfs sem unnið er á vettvangi Píeta samtakanna, en þau sinna mikilvægu forvarnarstarfi gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða og styðja við aðstandendur í slíkum aðstæðum,“ segir Haraldur og kveður mikinn einhug hafa verið meðal starfsmanna um valið.
„Píeta samtökin eru að stærstum hluta rekin fyrir frjáls framlög og ánægjulegt að geta stutt við þau með veglegum hætti. Starfsemin er umfangsmikil og þjónusta veitt allan sólarhringinn. Þarna er unnið mikilvægt og þakkarvert starf.“
Auk Fossa taka Kauphöllin (Nasdaq Iceland) og uppgjörsfyrirtækið T Plús þátt í Takk deginum með því að fella niður öll gjöld af viðskiptum Fossa innan dagsins og renna þau í staðinn til söfnunarinnar. Þá gefur auglýsingastofan TVIST vinnu sína sem tengist deginum.
Allt frá upphafi hefur verið mikil ánægja með framtakið og vöxtur í söfnuninni. Á síðasta ári söfnuðust 21,6 milljónir króna sem runnu til Jafningjaseturs Reykjadals og árið áður söfnuðust 12,6 milljónir til handa Geðhjálp.