Reitir fasteignafélag hf. hefur lokið stækkun á skuldabréfaflokknum REITIR 150529. Flokkurinn er verðtryggður og tryggður með almennu tryggingafyrirkomulagi félagsins. Flokkurinn ber 2,50% fasta ársvexti og er með lokagjalddaga árið 2029 en endurgreiðsluferli höfuðstóls fylgir 30 ára greiðsluferli með jöfnum afborgunum.
Seld voru skuldabréf að nafnverði 1.500.000.000 króna á ávöxtunarkröfunni 2,50% og verður heildarstærð flokksins því í kjölfar stækkunar að nafnverði 11.938.911.510 krónur.
Stefnt er að uppgjöri viðskiptanna fimmtudaginn 19. mars og verður óskað eftir því að nýju bréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland sama dag.
Grunnlýsing félagsins, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreinds skuldabréfaflokks eru birt á vefsíðu félagsins, reitir.is/fjarfestar. Tilkynningar sem Reitir fasteignafélag hf. birtir í tengslum við viðvarandi upplýsingaskyldu frá birtingu grunnlýsingar má jafnframt nálgast á vefsíðu félagsins.
Fossar markaðir höfðu umsjón með sölu skuldabréfanna, útgáfu þeirra og töku til viðskipta.
Nánari upplýsingar veita Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri Reita, netfang: einar@reitir.is, sími 669-4416, og/eða Matei Manolescu, Markaðsviðskipti, Fossar markaðir, sími 522-4008, netfang: matei.manolescu@fossar.is