Reykjavíkurborg hefur ákveðið, í samræmi við útgáfuáætlun 2021, að efna til útboðs á skuldabréfaflokkunum RVK 32 1 og RVKN 35 1 miðvikudaginn 27. janúar. Heimild til lántöku á árinu 2021 er 34.400 m.kr. Engin lán hafa verið tekin það sem af er ári.
Reykjavíkurborg stefnir að því að taka tilboðum að fjárhæð 2.000 m.kr. að markaðsvirði í útboðinu.
Útboðið verður með hollenskri aðferð, þar sem öll skuldabréf verða seld á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekið verður. Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að hækka og lækka útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er að hluta eða í heild eða hafna öllum. Niðurstöður útboðsins verða birtar opinberlega eigi síðar en næsta virka dag eftir útboð.
Áætlaður uppgjörsdagur er þriðjudagurinn 2. febrúar.
Fossar markaðir hafa umsjón með útboðinu og kynna það fyrir hugsanlegum fjárfestum. Fjárfestar skulu skila inn tilboðum fyrir klukkan 16:00 miðvikudaginn 27. janúar 2021 á netfangið utbod@fossar.is.
Nánari upplýsingar:
Helga Benediktsdóttir
Skrifstofustjóri fjárstýringar- og innheimtuskrifstofu Reykjavíkurborgar
Netfang: helga.benediktsdottir@reykjavik.is
Sími: 898-8272
Daði Kristjánsson
Fossar markaðir hf.
Netfang: dadi.kristjansson@fossar.is
Sími: 840-4145
Matei Manolescu
Fossar markaðir hf.
Netfang: matei.manolescu@fossar.is
Sími: 832-4008