22. október 2024

Orkuveitan – Útboð á grænum skuldabréfum í dag 22. október

Orkuveita Reykjavíkur (Orkuveitan) efnir til útboðs á skuldabréfum í dag 22. október 2024. Boðnir verða til sölu grænu skuldabréfaflokkarnir OR0280845 GB, OR180255 GB og OR031033 GB.

OR031033 GB ber fasta 8,30% óverðtryggða vexti og greiðir jafnar afborganir á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 3. október 2033. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 4.630 m.kr. í flokknum.

OR280845 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 28. ágúst 2045. Flokkurinn ber 3,70% fasta vexti og er uppgreiðanlegur að 13 árum liðnum. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 3.430 m.kr. í flokknum.

OR180255 GB ber fasta 2,6% verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 18. febrúar 2055. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 35.766 m.kr. í flokknum.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.
Skila skal inn tilboðum á netfangið utbod@fossar.is fyrir klukkan 17:00 í dag, þriðjudaginn 22. október 2024. Uppgjör viðskipta fer fram þriðjudaginn 29. október 2024.

Nánari upplýsingar veita: 

Snorri Hafsteinn Þorkelsson, framkvæmdastjóri Fjármála Orkuveitunnar, sími: 516 6100, netfang: snorri.hafsteinn.thorkelsson@or.is

Matei Manolescu, markaðsviðskiptum Fossa fjárfestingarbanka, sími: 522 4008, netfang: matei.manolescu@fossar.is