Lokuðu útboði á grænum skuldabréfum Orkuveitu Reykjavíkur lauk í gær, 1. desember 2020. Gefin voru út skuldabréf í flokkunum OR020934 GB og OR180255 GB en skuldabréfin eru verðtryggð jafngreiðslubréf með lokagjalddaga 2. september 2034 og 18. febrúar 2055.
Í heildina bárust tilboð upp á 3.890 m.kr. að nafnvirði í flokkana.
Heildartilboð í OR 020934 GB voru samtals 2.970 m.kr. á bilinu 1,28% – 1,44%. Tilboðum að fjárhæð 2.270 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 1,36%.
Heildartilboð í OR180255 GB voru samtals 920 m.kr. á bilinu 1,42% – 1,47%. Tilboðum að fjárhæð 620 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 1,43%.
Fossar markaðir hafa umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.
Nánari upplýsingar:
Ingvar Stefánsson
Framkvæmdastjóri fjármála OR
Sími: 516-6100
Netfang: ingvar.stefansson@or.is
Matei Manolescu
Markaðsviðskipti, Fossar markaðir
Sími: 522-4008
Netfang: matei.manolescu@fossar.is