Lokuðu útboði á grænum skuldabréfum Orkuveitu Reykjavíkur lauk í gær, 23. júní 2020. Gefin voru út skuldabréf í flokkunum OR 020934 GB og OR180255 GB en skuldabréfin eru verðtryggð jafngreiðslubréf með lokagjalddaga 2. september 2034 og 18. febrúar 2055.
Í heildina bárust tilboð upp á 4.595 m.kr. að nafnvirði í flokkana.
Heildartilboð í OR 020934 GB voru samtals 2.405 m. kr. á bilinu 0,90% – 1,02%. Tilboðum að fjárhæð 1.415 m. kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 0,91%. Heildartilboð í OR180255 GB voru samtals 2.190 m. kr. á bilinu 1,31% – 1,38%. Tilboðum að fjárhæð 1.440 m. kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 1,32%.
Fossar markaðir hafa umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.
Nánari upplýsingar:
Ingvar Stefánsson
Framkvæmdastjóri fjármála OR
Sími: 516-6100
Netfang: ingvar.stefansson@or.is
Matei Manolescu
Skuldabréfamiðlun Fossa markaða
Sími: 522-4008
Netfang: matei.manolescu@fossar.is